Blogg

28.11.2009

Hóhóhó

Salve gott fólk emoticon
Þá er alveg hellingur búið að gerast... Mamma og pabbi komu í heimsókn hérna um miðjan Nóvember og voru hér í viku og vááa hvað það var æðislegt að fá þau.

Við fórum útum allt í Milanó með besta tourgædinum honum Sigga Fúsa emoticon
Við fórum svo til San Marinó að horfa á 21 árs liðið spila og rændum svo Óskari með okkur norður til Milanó á eftir og han var hjá okkur í nokkra daga. 

Mjög gaman að honum!! Eins gaman og houm þótti að sjá uppáhalds frænda sinn var hann var ekki alveg að digga þessa ítala.. haha  Átti ekki til orð að þeir kunna ekki ensku, meikar ekki þetta væl í þeim svo eiga þeir margt eftir að læra í sambandi við skemmtistaðamenninguna vill hann meina!!! hahah
Já við fórum sem sagt á djammið hér í fyrsta sinn með Óskari og það var áhugavert. Borguðum inn fengum miða, frían drykk svo átti að halda uta um miðann og stimpla á hann fyrir hvern drykk (hver vill halda utan um hvað hann er búinn að drekka b.t.w??)..Svo þegar maður fer út á maður að borga fyrir miðann og síðan sýna hann við útganginn. Ok.. flókið.. en gerðum það en Jói gleymdi að halda miðanum eftir að hann borgaði og þegar hann fór út og var ekki með miða, fékk hann ekki að fara út! haha Já hann var bara í haldi þar til hann borgði auka 30 evrur eða eitthvað bara til að komast út!! hahah ég sé þetta fyrir mér ganga á 'Islandi  emoticon emoticon
Hér eru þeir kátir með dótið sem þeir keyptu af einum svona svörtum, flottir emoticon


Annað í fréttum er það að mömmumorgnanir eru alltaf jafn skemmtilegir og HH eeelskar þá..
Svona fjörugur alltaf...
 
Litlu Jólin svo 15.des hjá þeim :)

Svo er hann orðinn algjör bílakall...
 


Og svo erum við eins og ítalarnir og skreytum jólatréð 1.des en þar sem við erum upptekin þá, ákváðum við að gera það aðeins fyrr.. og HH sá um skreytingarnar :)

Ánægðir eftir að hafa sett toppinn á tréð emoticon


En svo eru Didda og Helgi hjá okkur núna og næsheitin halda áfram ...
Helgi Hafsteinn er svo ánægður að fá að sjá ömmu sína og afa, hann skríkir alveg af ánægu emoticon
Yndislegt að sjá þau loksins !!!


Jólastuðskveðja frá Ítalíu emoticon 
Margaríta

Vill svo henda inn einni massa afmæliskveðju á Anítu fallegu súperfrænku

Treysti því að Valgerður og restin af Freaky frogs crewinu máli bærinn eeeldrauðan, vildi óska að ég væri þarna emoticon  Knús í tætlur

Skrifað 28.11.2009 kl. 15:43 af

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.11.2009

Jólin á Íslandi ;D

4.nóv!!! Ég er ekki að trúa hvað tíminn líður hratt hér! Jólin verða komin áður en maður veit af...-sem er ágætt þar sem ég er komin í heiftarlegt jólaskap! Og nýjasta nýtt..VIÐ KOMUM HEIM UM JÓLIN :D
Er ekkert smá ánægð...auðvitað hefði verið fínt að halda jólin úti en, það kom a daginn að Jói getur tekið prófin í des í staðinn fyir febrúar eins og allir ítalarnir! Þannig að mín í símann og náði að breyta fluginu... allt á ítölsku!!! Já ég held nú að hún sé að fara koma aftur þessi elska! ;) Maður verður bara að þora að drullast til að tala... ;D

En það sem er annars að frétta er að við HH erum búin að byrja í svona "mömmu morgnum" svona undirbúiningur fyrir leikskóla. Þar sem krakkar á svipurðum aldri koma saman og mömmurnar verða á staðnum, en það verður einhverskonar leikskólakennari þarna hjá okkur. Það verður fróðlegt að sjá "Herra Ég Leik Mér Bara Við Fullorðna" ungangast jafnaldra sína. Við verðum sem sagt á þriðjudags-og föstudagsmorgnum ásamt svona 15 öðrum emoticon Brjálað stuð...

Jói er farin að æfa með Pavia, lið í seriu C. Það eru svona 1-2 æfingar á dag og svo alltaf æfingleikir á fimmtudögum. Mjög gaman fyrir hann. Ég get svarið það að hann sé með Male-Crush á einum í liðinu.. Benny eitthvað... emoticonEitthvað gamalt legent..Hættir ekki að tala um hann..  emoticon

Ég er bara algjör húsmóðir sem elda í öll mál. Líf mitt er farið að snúast doldið um mat. Ég er endalaust að plana einhverjar máltíðir.. haha ég er að verða eins og Samantha.. kem heim vel cubby og stelpurnar fá sjokk! haha
En svo passa ég mig að sjálfsögðu líka að tékka á rauðvínunum ;)

Mamma og pabbi koma svo eftir viku og Óskar bró líka.. hann er að fara keppa en svo verður hann eftir yfir helgina. Við erum svona að spá í að draga hann með okkur á einvern leik á lau.. vitum ekki alveg hvort það verður Inter eða MIlan heimaleikur... vonum Milan ;Demoticon

Jæja ætla að nota tímann meðan strákurinn sefur og laga til (eitthvað sem maður gerir minnst 10 x á dag)
XXX
Full Time Mom Magga

Skrifað 4.11.2009 kl. 11:50 af

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 22
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 114327
Samtals gestir: 49793
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 23:25:43
pregnancy calendar