Blogg

11.12.2008

Já góðan dag dag daaag!

Fallega stelpan með skæra ljósið komin í hús!
:D
Og með gömlu kellingarnar í kringum sig!
Það sagði allavegana Þórhallur miðill!!
HAHAHA já ég var sem sagt hjá honum Þórhalli Guðmundssyni! Vvááá hvað það var gaman!
Þetta er akkurat sem maður þarf í kreppunni...-spjall við liðið fólk að handan!
Langamma er mér við hlið alltaf og ætli þetta sé ekki bara saumaklúbbur hennar þarna með henni! :D
En fékk spólu og allt ;D  Hann spurði hvort ég ætti stelpu og sagði svo já hún mun koma!! hahah en hann sá 3 börn hjá mér. Og sagði svo að Helgi Hafsteinn yrði mjög skemmtilegur persónuleiki og hló svo. Hann sagði að Jói væri þrjóskur, og að hann ætti að passa öklana sína og mjóbakið! En honum mun vegna vel í því sem hann gerir. Margar ólíkar dyr munu opnast hjá honum bráðum og við munum eiga mjög kærleiksríka, skemmtilega og yndislega ævi saman sama hvaða dyr við förum í gegnum!! ;D
27 og 28 ára aldurinn hjá mér mun eitthvað mjög yndislegt gerast hjá mér.
(Ég er að segja ykkur þetta er bara gaman :D)
Skilaboð frá ömmu var að hætta að bera mig saman við einhverja og vera ánægð með mig eins og ég er!
Afi Óskar kom og stappaði í mig stálinu og kom Þórhalli til að hlægja.
Hann sagði að ég þyrfti stundum að fá spark í rassinn til að gera eitthvað fyir sjálfan mig! (Er viss um að ég þurfi bara að fara meira í dekur og nudd og svona ;D)
Ungur strákur kom og vildi skila kveðju... er enn að vinna í að finna út hver það er! :D
En sem sagt þetta var alveg geðveikislega gaman ;D
Þórhallur faðmaðu mig svo og kyssti mig á hendina og sagði aftur hvað ég væri falleg! -Hver þarfnast ekki svona egóbúst í skammdeginu  ;D 

En að Helga..-hann  er farinn að fatta uppá allskonar hjóðum og er Háa C-ið núna þvílíkt vinsælt! haha
Ekki alveg að gera sig, sérstaklega þegar ég var alveg eins og drusla í gær með höfuðverk og hita.
Já smá veikindi á okkar bæ. Helgi byrjaði að vera smá veikur, kvef og smá hiti, svo lagaðist hann en náði að smita mig! Ég ætlaði að fara með hann uppá spítala þegar hann var kominn í 38°
Smá nojuð mamma!  hehe
En núna erum við að skríða saman og Háa-Cið hans ekki eins pirrandi eins og í gær!

"vill einhver taka mig upp?"

Jói er í prófum og er hann bara fyndinn..pirrandi..en fyndinn! Það sem að strákar geta tekið þessa próftíð alvarlega.
Hann var umtalaðasti gaurinn með prófmygluna á bókhlöðunni um daginn og eftir að allir sem að hann hitti spurðu hvort hann hafi sofíð á hlöðunni þorir hann ekki öðru núna en að djella á sér hárið áður en hann fer úr! hahahah

Annars er Helgi bara góður og brosir bara og hlær. Og sérstaklega þegar hann sér pabba sinn á kvöldin. Þá skellir hann alltaf uppúr og Jói þarf ekki að gera neitt.  Kannski er hann bara að hlægja af myglunni hans hahaha


OG svo svona í lokin...
Fann þessa mynd á gömlu tölvunni hennar Ólafar... haha þetta var sveitta sálarballið á Nasa júní eða júlí 2006 -haha dýrka að finna svona gamlar myndir!



Pís M.og gamla fólkið ;D

Skrifað 11.12.2008 kl. 13:59 af

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 113956
Samtals gestir: 49704
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 01:48:30
pregnancy calendar