Blogg
30.10.2008
Kvennalandsliðið rúlar!
Ég er að deyja úr stolti af íslenska landsliðinu! Spurning um að splæsa í stelpuferð til Finnlands á næsta ári! EInhverjir game?
I LOVE -KVENNAknattspyrnuna :)
Svo er það mál málanna...
HALLOWEEN
Er fólk komið með búning???
:)
Verð að viðurkenna að ég er doldið að flakka á milli hugmynda! Er eiginlega að panika og heilinn kominn í stop! Endilega laumið til mín hugmyndum! ;)
En hvað finnst ykkur annars um þetta?
Ég get stundum verið smá tepra..
-en fjandinn hafi það ef þetta særi ekki fleiri blygðunarkenndir en bara mína!!!
!!!!
Svona fá mín börn bara að klæða sig...
hahaha já fésbókarmyndin-præsless!
En hanyways hlakka svo geðveikt til!!
Svo smá svona hugmynd fyrir kallana!!
Jolle ;D
8.10.2008
Til Bahama -EYJA
Ætla bara að halda áfram leitinni hennar Ólafar að fótboltaskvísum hér í bænum..-er hrikalega geim í bolta!
Maður er nú að byrja að hreyfa sig.. ekki laust við að maður sé bara alveg drullu slappur í öllum kroppnum! Fór í fyrsta skiptið uppí Hreyfingu í dag og mín tók 2x skíðavélina í HEILAR 10 mínuútur og ég var við það að hringja á sjúkrabíl! Váá ég bara var alvarlega að hafa áhyggjur af því að missa mjólkina! hahahah EKki beint í besta forminu!
Annars er ég geim í Grindavík ef þeir eru fastir á þriðjudögum.. Maður er nú farinn að stunda mömmumorgnana þarna!
EN fótboltaballið er afstaðið og það var alveg hrikalega gaman.. meira man ég ekki!
Þvílík vitleysa!
Gebbalínos í stöðinu :D haha
Ojj hvaða rugl er í gangi hér?!!!
Meðan allt lék í lyndi! -og ekki búin að týna bikarnum haha
Lýsi hér eftir kynþokkabikarnum!!!
Sólný var með alveg fáranlega flotta ljósmyndasýningu í saltfiskssetrinu um daginn! Gegnumbrot. Mæli með að kaupa sér mynd! HVer vann nú samt Nafnakeppnina?? Aníta? haha En innilega til hamingju Sólný með áfangann!
Hér var aðalmódelið á sýningunni að passa!
En glittir í myndirnar á sýningunni ..ekkert smá grúvý myndir!
Svo er yndislegi drengurinn minn búinn að hlægja sínum fyrsta hlátri! Það var á laugardaginn! Ég var eitthvað að kjássast í honum á skiptiborðinu svo kom allt í einu þessi fallegi hlátur.. haha ég tapaði mér.. Jói heyrði í honum og kom hlaupandi.. svo héldum við áfram og aftur hló hann..og hló og hló! haha ég táraðist bara! Ekkert smá fallegur hlátur.. og smitandi og allt!! haha
3 mánaða gaur :D
ALgjör ENGILL!!!
Ekki laust við að það sé bara algjör grallari bak við þessi augu!
Þetta er lífið gott fólk.. ætla að fara elda mat..
munið bara að faðma hvert annað og guð blessi Ísland!!! ;D

