Blogg
16.7.2008
9 daga gamall gutti!!
JÆJA þá er komin barnalandsíða!
Hann er barn nr.76314 eða bara Óskírður Jóhannsson
(magga_peturs@hotmail.com eða hannihelga9@hotmail.com til að fá leyniorðið)
fullt af myndum þar!!
Verð að viðurkenna að við kunnum minnst á þetta..en þetta virðist vera nokkuð idiotproof!
Við fjölskyldan erum búin að hafa það svo fínt! Kúrum bara allann daginn. Erum að kafna úr hamingju! 
Nú er Jói reyndar farinn að vinna aftur og maður sér mjög lítið af honum svona á venjulegum degi. Maður er enn doldið hræddur um að vera einn með prinsinum. Mér finnst svo leiðinlegt að skipta á honum því hann fer alltaf að gráta og þá vorkenni ég honum alltaf svo! 
En hann er allur að koma til, hann grét til dæmis ekkert áðan! Yesss!!
En það sem maður er dáleiddur af honum. Enn get ég ekki tekið augun af honum! Hann er svo mikið fullkominn!!
Hann er orðinn 9 daga gamall! Það er ótrúlegt.. hjúkkan kom í gær og leist bara vel á hann! Hann er orðinn 3250 gr. Allur að stækka, meira að segja að koma með netta undirhöku!!
Ég er orðin alveg kolrugluð á öllum þessum brjóstagjöfum! Hann drekkur nátturulega óendanlega mikið, og aldrei lengra en 2 tímar á milli.. nema á nóttunum eru það kannski 3 
En síðustu nótt, vakti Jói mig, "ættiru ekki að gefa honum núna?" segir hann, og ég var ekki lengi að svara "hann er á brjóstinu á mér"...
svo áttaði ég mig á að mig var bara að dreyma og hann var ekkert á brjóstinu! haha
Stundum er eins og það sé búið að sjúga allt líf úr manni. En ég er að elska það! Það er fáranlega góð tilfinning að gefa barninu sínu á brjóst!
Svo er ég svo sjúk í hann að ég vil helst bara halda á honum allann daginn! Er svo auðvitað komin með massa vöðvabólgu.. eitthvað er jói ekki eins duglegur að nudda mig núna eins og þegar ég var ólétt!
Mamma dró okkur út að labba í dag, það var svo geðveikt veður og við kútur erum alveg game over núna.. haha
En við náðum að spá í skírinni! Fórum uppí Dómkirkju og spjölluðum við einhverja konu.. ja eða mamma gerði það, ég var bara úti í sólbaði á meðan! Og erum við að stefna á að skíra annan laugardag, eða lau. 26.júlí! Eigum bara eftir að staðfesta!
Okkur hlakkar svo til að skíra, getum varla beðið!
Við köllum hann alltaf þessu nafni heima og Jói meira að segja missti það út úr sér Pálmi var í heimsókn.. þannig að hann veit! haha
Spennó spennó
Lilja Katrín litla frænka vill endilega að hann heiti Folaldur!
Spurning??
Hann verður náttla algjör foli..
Hér er hann að æfa seiðandi augnaráðið sitt!!
En svo var Sólný frænka svo æææææðisleg að mynda litla krúttið og myndirnar eru geðveikar!
Jæja hef þetta ekki lengra í bili.. þarf að fara elda fyrir kallinn!
Og gefa stráknum...
Nú er maður loksins orðinn fullorðinn!
Ást á línunu..
Langaði líka að þakka fyrir allar kveðjurnar og heimsóknirnar!
Magga og lille pjakkur
12.7.2008
07.07.08 BESTI DAGUR Í LÍFINU
HALLÓ HEIMUR...
HÉR ER ÉG...
ER ETTA EKKI FALLEGASTA BARN SEM ÞIÐ HAFIÐ SÉÉÉÉÐ??
jII Hvað við erum í skýjunum með litla pínulitla gullið okkar!!!
Þetta er sko fáranleg tilfinning..
Mér finnst ég ekki ná andanum úr hamingju!
Hann kom í heiminn mánudaginn 07.07.08
Þá búinn að vera í mallanum mínum í 38vikur og 1 dag
Ég missti vatnið þarna um klukkan 10 um morgunin.. var ekki alveg viss.. hélt að ég væri bara endalaust að pissa á mig.. haha
Fékk Jóa heim úr vinnunni til að hringja í fæðingadeildina til að spurja hvort þetta gæti verið vatnið! haha Hann kom notta á núll einni.. og hringdi og við fórum svo í kjölfarið uppá fæðingagang.. konan tékkaði á mér, athugaði hvort þetta væri ekki örugglega vatnið.. og jú mikið rétt!
Þá byrjuðum við að vera spennt..ekki meira en sólahringur í þetta..konan fann ekki kollinn þarna niðri og fannst þetta eitthvað skrítið.. náði svo í sónarinn og sagði svo áhyggjufullri röddu..
já kollurinn er hérna uppi.. Barnið er sitjandi!!
En við tókum þessu eins og hetjur og keisari ákveðinn..
Við spurðum hvenær hann myndi vera sirka.."æ það er leikur hjá honum kl.7 uppá skaga" haha hún sagði að hann myndi jafnvel alveg ná honum.. haha
Við fengum að fara heim ná í dót og koma aftur eftir hálftíma eða svo..
Þegar klukkan var að verða 13 var ég farin að finna mikinn þrýsting með samdráttunum og var því bara fegin þegar ljósan kom og náði í mig og sagði að nú væri komið að þessu!! Shiiit..ég var svo spennt en hrædd í einu!
Svona keisari er nátturulega hrikalegur þegar meður er með svona spítala,nála,blóðfóbíu á háu stgi eins og ég!
En allt gekk þetta eins og í sögu og allir svo yndislegir..alveg hátt uppí 10 manns þarna inni..allir eins og englar og töluðu mig rólega og hugsuðu vel um Jóa..
Jói var nátturulega kletturinn minn þarna, var við hausinn á mér allann tímann og talaði við mig út í eitt..ég man nátturulega ekkert hvað hann var að segja en þetta lét tímann allavegna líða furðufljótt.
Smá pot í magann og þrýstingur undir rifbeinin og svo klukkan 14:04 sagði yndislega ljósmóðirin við okkur brosandi "þetta er búið"..
Allir að óska okkur til hamingju og sögðu að þetta væri flottur strákur..
Við nátturulega með tjaldið þarna fyrir og sáum ekkert og heyrðum ekkert!
Hvar er gráturinn???
Er þetta búið??
Hvað er að gerast??
Svo kom það....
Það fallegasta í heimi.. gráturinn hans úr fjarska..
Vááá hjartað gjörsamlega ætlaði út úr kassanum..."Ertekki að grínast?" heyrist í jóa svo grétum við og hlógum í einu..við eiginlega háskældum!
Jói fékk að fara og ná í hann hjá barnalækninum svo sá ég þá koma handan við tjaldið góða..
og vá hvað ég grét..strákarnir mínir!!!
Ég gat ekki tekið við honum strax þar sem var verið að púsla mér saman..en pabbi hans hugsaði vel um hann!
Það var það æðislegasta í heimi að fá hann loksins..
Hann var sem sagt 48 sm 2940 gr. sem sagt tæpar 12 merkur FULLKOMINN!!
Didda og Helgi(amman og afinn) voru hér fyrir sunnan og Dóri og Bjöggi.. svo Akureyrargegnið var næstum allt hér og gátu séð hann alveg nýbakaðann!
Jói brunaði svo á skagann að keppa eftir að ég var komin af vöknun nátturulega skoraði fyrir litla strákinn sinn! :D Litli kútur nátturulega svoo stoltur af pabba sínum 
Við komum svo heim á föstudaginn og það var svo gott! Mamma var nátturulega búin að taka allt í gegn og sótthreinsa hvern krók og kim. Hún er aldrei nema svona mínutu í burtu svo ef ég þarf hana hringji ég bara eitt símtal og hún kemur eftir 2 sek.. Ekki slæmt það! Takk elsku mamma 
Jói er búinn að vera svo yndislegur..stjanar endalaust í kringum mig og hefur ótrúlegt lag á stráknum okkar! Hann verður örugglega algjör pabbastrákur..
Hann drekkur vel og mikið og er algjör kúrukall..
vill helst bara sofa uppí hjá okkur og möst að hafa okkur alveg oní sér!
Við erum núna á fullu að gera svona barnaland síðu..
Þannig að ég læt ykkur vita þegar það verður klárt!
Það er búið að vera yndislegt að fá alla í heimsókn og að fá allar kveðjurnar!! 
Ætla að fara hugsa um litla krílið mitt...
Kveðja Magga sem ELSKAR LÍFIÐ
3.7.2008
Nokkrir dagar eftir.. eða vikur...
mm love it! Kominn tími á smá rigningu!
Ég er bara heima þessa dagana, gera klárt fyrir litla gullið sem fer alveg að koma!
Ég má víst ekkert vinna, því blóðþrýstingurinn er orðinn doldið hár og fer ég til ljósu 2 í viku núna alltaf til að tékka á honum! En fór í svona mónitor á þriðjudaginn til að athuga hvort barnið sé nokkuð að sljóast niður útaf honum, en neinei það er bara í fullu fjöri hérna inní mér!

Þannig að það er allt í góðu bara!
Ég á bara að taka því rólega, enga fótboltaleiki eða svo segir hún, en hún var alveg örugglega bara að grínast! ;)
En eins og ég segi finnst mér ég bara vera tifandi tímasprengja, þetta getur allt eins komið í dag eins og í byrjun ágúst..
Á maður ekki eftir að bregða maður þegar þetta byrjar! shiiit! haha
Jói er kominn í viðbragðstöðu og þau Gebba eru farin að ýminda sér hvernig þetta verður..
Í Gebbu huga, kemur þetta á fótboltaleik, Jói skorar, fagnar með Bebe vöggufagninu og hleypur svo útaf og beint á spítalann með mér..
í Jóa huga missi ég vatnið á fótboltaleik, hann keyrir mig biður ´Tótu um að koma með til að hugsa um mig, hún fer að stað líka og hann situr uppi með 2 gellur með hríðir í aftursætinu!!
hahaha um að gera að missa sig í ýmindunarveikinni!
En ætli það stefni ekki bara í það að ég fari af stað í miðjum fótboltaleik þar sem maður er á fullu í hoppum, bylgjum og "litlum skrefum" hahaha
Dýrka stuðningsmannaklúbbinn Síkalda! Allir svo fyndnir!!

En hey ég gerðist barnaland nörd um daginn... ég rumpaði inná einhverja síðu sem var svona sölusíða hjá einhverri konu (tek það fram að ég kann ekkert á þessa síðu) og hún var að selja innbúið sitt og ég sá svona hevý flott borðstofuborð og 8 stóla.. prufaði að gera tilboð.. fékk strax svar.. hringdi í hana og hún vildi endilega að ég kæmi og skoðaði, þannig að við Jói fórum um kvöldið.. og leist svona vel á þetta. Þau hjónin vildu endilega selja okkur það.. Það eru víst endalaus góð matarboð sem þetta borð hefur þjónað.
Jói var líka bara sáttur við verðið þar sem ég hef verið að suða í honum að fá að kaupa borðstofustóla í Tekk company sem kosta 24.500.kr STYKKIÐ..og ég vildi 6!!
En við sem sagt enduðum með að kaupa þetta gullfallega HUGES borð og 8 stóla á 40.000 þús! Redduðum flutningsbíl og nú er þetta komið í sætu litlu íbúðina okkar!
En þetta borð og 8 stólarnir voru ódýrara en 2 stólar í Tekk!
hahaha
En við erum sem sagt að koma okkur i matarboðagírinn og ætli það verða ekki líka ófá pókerkvöldin hér hjá kallinum! -og spurning um að ég byrji líka að hafa "stelpu-póker" kvöld!

En ég er bara hevý sátt með þetta! Þetta veldur því samt að nú verð ég alltaf að tékka á svona góðum kaupum á barnalandi! haha
Nörd-alört!

Enda þetta á fótó af fyrstu tónleikum krakkans..
Nátturutónleikunum með SigurRós og Björk

Jói, ég bumban og Jónsi sem fór á kostum!
Barnið var mikið að fíla SigurRós

Súmm á mig og BUMBuna sem stækkar og stækkar!!
Laufey þarna fyrir aftan að sötra La Birra! mmmm
Fleiri myndir í myndaalbúminu
En svo nokkrar hamingju óskir..
HELGI TENGDÓ Á AFMÆLI Í DAG! TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ GAMLI!!
KRISTÍNAR OG BOGASONUR ER KOMINN MEÐ NAFN:
BÓAS MYRKVI!! INNILEGA TIL HAMGINJU MEÐ ÞAÐ LITLI DRAUMUR!!
En þangað til næst...Þórsgatan er alltaf opin fyrir innliti!!

lovlov Magga

