Blogg

28.3.2008

Update...

Barnaupdate...
Ætla bara að deila þessu með ykkur hérna..
Fanns þetta svo fyndið..




Nú allt i einu finnst mér ég komin nokkuð á leið með þetta kríli!
Farið að sjást hvernig það skríður  inní mér.. lappir einumegin og hendur hinummeginn..
haha Doldið krípi svona stundum!



En eins og efri myndin segir "hefur ég ákveðið að deila LOKSINS fitunni minni með barninu!"
haha Jói ætlaði ekki að þora að þýða þetta fyrir mig.. hélt að ég yrði eitthvað viðkvæm! hahah

Workupdate..
þá er vinnan mín er alveg æði! Geðveikt að vera með í að opna svona flotta stöð!
Blue Lagoon Spa fyrir þá sem ekki eru með á nótunum ;)
En þetta er sem sagt þarna í  Hreyfingu í Glæsibæ..
Formlega opnunin er einmitt á morgun milli klukkan 4-6, þó svo það sé smá síðan við opnuðum!
En ég hvet ykkur til að koma til mín þarna og skoða þetta.. Allt að verða svoo kósý hjá okkur! OG þessar vörur eru geeeðveikar! Orðin alveg húkkt á þeim núna!
Spa meðferðirnar eru svo nottla eitthvað sem allir þurfa að prófa..
Við Jói fórum í Floating laugina eða fljótandi djúpslökunina í gær, þetta er svona spes pottur sem er fullur að saltvatni (30%salt), þannig að þú flýtur um í ákveðnum straumi í 50 mín og þetta gefur líkanum slökun sem samsvarar 8 tíma svefni..
Ég hló doldið mikið fyrstu 10 mín en náði svo a slaka á og váá hvað þetta er geðveikt!
Ég var alveg alltof slök eftir þetta og náði að sofa svona Beatuful í nótt og var svo líka alveg pollróleg í allan dag! haha Yndislegt! Svo eru svo góð steinefni og vítamín í vatninu að húðin fær líka extra treat!
Mæli hiklaust með þessu!
Við öll eigum skilið að láta dekra soldið við okkur eftir svona erfiðan vetur


5some update...
Við 5some gellur erum komnar með nýtt FRÍTT blogg!
Já kreppan er okkur erfið og ákváðum að skera niður!
Þannig að endilega breytið linkunum ykkar..
á 5some.bloggar.is
Gebba er on fire og er meira að segja búin að henda inn myndum frá Sálinni 14.mars!

En held að ég hafi ekki mikið meira en bara..



The Hormonal Magga

Skrifað 28.3.2008 kl. 19:15 af

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.3.2008

Páskarnir..

Já þá er maður doldið komið inn í páskafríið og bara að njóta þess!
Bjögga beib hélt 30  ára afmælið sitt á Kaffi Victor á miðvikudagskvöldið.
Geðveikt gaman!


Erla var svaka dugleg með myndavélina og ég fékk hérna nokkrar myndir frá henni..

Ólöf var að kenna okkur Anítu að vera sexy á myndum!  "Að vera móti vindi í blindbyl" aðferðin..


..þetta var afraksturinn!!! hahaha

Hæi reyndi líka..

hahahha Held að við höfum ekki náð þessu Ólöf!!

Það var dansað og tjúttað og að sjálfsögðu var frænskystkina teamið síðust út...


Teddý,afmælisbarnið og Aníta!!


Við fórum bara nokkuð snemma heim eða um hálf 2, Jói var að fara til Svíþjóðar þarna eldsnemma morguninn eftir og ég þurfti nottla að vakna með honum og skutla elskunni á flugvöllinn um 5:00! Maður var doldið stjarfur næsta dag!
Hann verður þar sem sagt til mánudags, er að heimsækja bræður sína og brettast.. og þeir hafa nú heldur betur náð að kenna honum eitthvað miða við myndina sem hann sendi mér..

Sjáið kallinn!!!

Svo á fimmtudaginn var farið að spila hjá Kristjáni og Jónu og glænýja bumbukrílinu  Til hamingju með það elskurnar.. Yndislegt!
..nema lítið spilað en nóg borðað af nammi og pizzum og talað í staðinn haha! Elín Tinna og Nonni takk samt fyrir að koma með öll þessi spil  haha

Fullt af afmælum  núna um páskana..

19.mars átti Hildur Vala frænka og Þorvarður frændi afmæli.. Þakka fyrir dýrindisveislu á föstudaginn!!

21. mars átti hún Anna María mín afmæli...
21 árs þessi elska..Lögleg á tjúttið í USA úúhhúú
 Til hamingju yndið mitt




En í dag 22.mars  er líka ein af mínum uppáhaldsmanneskjum afmæli í dag! Það er hún Gebba mín!
Hún er orðin svo gömul stelpan..
alveg 26 ára!!!
En hún er samt svo ungleg eins og við allar nottla!

haha mannstu eftir þessu kvöldi Gebba?

Til hamingju með daginn elskan!!

 

Já svo eru páskarnir bara á morgun og við Ólöf illa sviknar þar sem við þurftum í fyrsta skiptið að kaupa okkar eigin páskaegg!! 1700 kall sem við sjáum aldrei aftur... Viss um að þetta egg séu ekkert betri en þessi fríu frá páska kanínunni.. (ja eða mo &pa)

En við erum sem sagt komnar með egg og spennan orðin rosaleg að sjá hversu vel eggin verða falin í ár!
Spurning um að fara í messu og allann pakkann! Horfa á skrípó og gera ekki neitt!
ohhh loooove it!


Ég vil bara óska ykkur öllum GLEÐILEGRA PÁSKA geri ráð fyrir öllum sætari og feitari eftir þessi ósköp!
Ég verð það klárlega!  

hilsen Magga og lille Sparkafast!

Skrifað 22.3.2008 kl. 20:38 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.3.2008

Dobra vedsjé

Langt síðan ég var svona dugleg á netinu!
Málið er að eldhúsborðið mitt er allt þakið makeup dóti síðan um helgina, svefnherbergið er fullt af dóti sem ég ætlaði að sortera fyrir helgi svo er þvottakarfan full og ég barasta nenni ekki fyrir mitt litla líf að ganga frá neinu! Gott hjá mér!
Núna skil ég afhverju fólk á próftíð pimpar alltaf allsvakalega myspace síðunarnar hjá sér! hahaha
En já ekkert mikið nýtt að frétta af mér!
Bara fersk alltaf en verð sko alveg ómöguleeeeg ef ég sofna eftir miðnætti!! Mjög fyndið hvað svefn er alltí einu orðinn mikilvægur!
Ég meira að segja gaf frá mér miða á Sálina á föstudaginn.. :(
Efa ekki að þetta verði ball ársins... ég treysti fólki að halda uppi rjúkandi stemmingunni enda "mitt landsliðið" á leið á herlegheitin!
Gebba, Dúna, Ólöf og Ingibjörg ásamt mökum.. haha, Aníta og Hæi heyrði ég einhverstaðar, Eggert og Teddý, Ágústa frænka og co. Valgerður lætur sig varla vanta eða hvað? heyrist bara allir vera á leiðinni! Ohh get varla talað um þetta lengur! Þetta verður geeeðveikt!!! 
Við mætum bara í 30 ára afmælið hjá þeim!!
En ég skal alveg höndla það að heyra af ballinu um helgina! Heimta að einhverjir taki glás af myndum!!
Og endilega reynið að láta Sebba fá myndavélina

Bjöggi bróðir hans Jóa tók hraðaþrautina í nefið þarna fyrir norðan!!
Fór svo í viðtal og það var bara eins og hann hafi ekki gert neitt annað! Sá ætti að taka bróðir sinn í kennslu í þessu.. Jói var settur í fjölmiðlabann hja KA á sínum tíma því hann var alltaf svo kjánalegur! hahaha

Við mamma og Ólöf vorum með kvikmyndamarathon um helgina.. leigðum 3 myndir og fórum í bíó! Sáum 27 dresses.. sem er annars ágætis mynd, nema við vorum allar í huganum komnar í giftinguna hennar Erlu sem verður haldin í Minnisota á næsta ári!
Vá hvað okkur hlakkar til!
Vonum bara að Erla verði góð og klæðir okkur brúðarmeyjarnar ekki í einhverja innipí**bleika kjóla (orð sem ég lærði af Ingibjörgu hahahah)!!
Þetta verður sko ekta Bandarískt brúðkaup.. veðja 50 dollara við ykkur sem farið að ég mun grípa vöndinn!! hahhaha

Já svo er bara afmælið hjá Bjöggu beib framundan! Aníta og Valgerður verða víst með atriði!! Spennandi að sjá!! lol

xoxo  Magga

hey p.s allir að koma í Blue Lagoon Spa í glæsibæ!
Erum með geeeðveikar meðferðir! Erum búin að vera æfa villt of galið síðustu daga... Andlitsbaðið okkar Söru kef-ara er nottla to die for!!!
Opnar í næstu vikur spennó spennó

Skrifað 11.3.2008 kl. 21:20 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.3.2008

Blogg

Sælar..
Datt í hug að henda inn nokkrum línum hérna ..víst það er farið að ibba gogg við mann!! haha
er bara í chillinu hérna að horfa á stöð 2 þar til það ruglast!! haha
Alltaf að vonast til að þessir kallar gleymi sér þarna á stöð 2! hihihi
En að mér er bara allt gott að frétta.. er búin að fara í minn síðasta sónar!
Það er graut fúlt! Mér finnst þetta eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef upplifað..-ennþá! haha Krakkinn er bara svo fyndinn! Við Jói vorum í kasti!
Fyrst þegar að við sáum hann(krakkann) var það að sjúga á sér puttann en snaar stoppaði því svo þegar það fattaði að einhver væri að horfa og setti sig í heimspekilegri stellingu eða.. "the Thinker" hahhaa
svo var hann bara að láta elta sig.. var á fullu sem sagt.. sýndi spark tilþrifin sín rosalegu, fór í kollhnýsa og allt! Svo var það örugglega þreytt á þessu brasi öllu , fann holu sem það gat sveigt haunum aftur þannig að hann lá á bakinu með hausinn sveigðann aftur.. voðalegt númer eitthvað sagði ljósmóðirin! hahaha 
haha þetta er bara svo yndislegt eitthvað... þetta er að verða svo raunverulegt allt!
Maður er bara að verða spenntur!

Við Kristín erum búnar að kíkja í nokkrar barnabúðir og skoða!
Og ó DEAR GOD! Ég gerði mér ekki nokkra grein fyrir því hvað fylgir einum krakka.. þetta hleypur í nokkur hunduð þúsundir ef maður er að fara versla þetta allt! Holy canoly
En vó hvað allt er sætt! Eins og krakkinn nái ekki að bræða mann einn og sér.. haha
Kristín verður að fara spýta í lófana.. þetta er bara að fara gerast bráðum hjá henni.. það er svona mánuður í hana!!! ooohhh ég er svo SPEEENNNT að sjá litla engilinn hennar!!
Þegar hún er búin ætla ég að fara huga að mér, þá eru 3 mánuðir í mig!
Við keyptum okkur óléttu naríur.. ekki samt svona ljótar eins og flestar óléttu naríur eru, heldur bara sexy
Tvö Líf þarna í Kópavoginum er alveg málið ef manni vantar óléttu föt!
Ég er reyndar svo heppin að mamma er búin að vera on fire í óléttukaupum! Hún er held ég orðin doldið spennt að sjá mig feita! hahha

Af pabbanum er bara lítið að frétta! Hann er á fullu í skólanum, hefur aldrei verið eins duglegur að læra, veit ekki hvort það er útaf metnaðinum eða bara hreinlega  að forðast geðsveiflurnar í mér! haha  
Hann er nottla að deyja úr spenningi, er farinn að sjá fyrir sér hvar hann getur haft svona innimark, því barnið verður jú í fótbolta..
En ef það á að slá í gegn í íþróttinni þarf það að fá að leika sér með bolta inni! það þýðir ekkert fyrir mig að kvarta! hahahah
En óléttu afsökunin mín er alveg komin á mute hjá honum! Ég fæ enga vorkun!
Hann er alveg "Romanticly challangeds" þessa dagana!!
 
Ólöf syss eða herra Ólöf eins og ég á að kalla hana núna var að fá þvílíka vinnu hérna í bænum! Var ráðin verkefnastjóri AFS.. starf sem er svo mikið sniðið fyrir hana!
TIL HAMINGJU ELSKU ÓLÖF!



Ætla að enda þetta á myndum af krílinu sem þóttist ekkert vera að sjúga á sér puttann! haha

"The Thinker"





Svo náðum við mynd rétt áður en vinstri fótar sparkið rosalega kom haha

Aldrei að vita nema maður hendir bumbumynd inn næst!

Skrifað 5.3.2008 kl. 19:39 af

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 114108
Samtals gestir: 49747
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 23:40:38
pregnancy calendar