Blogg

14.2.2008

HAPPY VALANTINSDAY!!!!

Eftir erfiða veikinda viku hjá mér kom loksins góður yndislegur dagur!
Ég er búin að vera eitthvað slöpp síðustu daga og með þennan heeevý ömurlega höfuðverk! Ég vakna með geðveikan verk sem svo fer bara ekkert yfir daginn! Öll hljóð eru við það að sprengja í mér hljóðhimnuna og saklausar perur í lömpum fara með hausinn á mér!
Fór til læknis og kom þar í ljós að ég væri með alltof háan blóðþrýsting og á  mánudaginn kemur í ljós hvort það er einhver vítamínskortur. Annars voru mörg einkennin sem minntu á mígreni, t.d hvar höfuðverkurinn væri!
Vona bara að þetta sé einhver jarnskortur eða eitthvað, ekki mígreni, vil ekki vera með svona hausverk bara sem eftir er! No way ho say!
En já núna á ég bara að taka parataps alltaf við verkjum og hann sagði að það myndi ekki skaða lille gúbben í maganum! Ég ætla bara að taka í verstu köstunum en reyna að taka sem minnst af þessum óþverra!
En já eins og ég sagði var þessi dagur mjög vel þeginn!
Ég er búin að vera pínu erfið við Óskar og Jóa svo fæ ég alltaf bömmer eftir á! haha voða er maður spes i  þessu ástandi! hahaha
En Jói vakti mig sem sagt með morgunmat og 3 risa stórum og flottum rósum... ein fyrir hvern fjölskyldumeðlim!!

hahah alltof sætur í sér!!
 

Ég gat notta ekki verið minni maður og bauð honum út að borða á okkar elskulega stað Vegamót !  Bara pör í kringum okkur, kannski smá klisja að fara út að borða á valentinusardaginn, en mér er alveg sama! Alltaf gaman að fara á deit!!  Og A la Vegamótarpizzan klikkar aaaaldrei! Vá hvað hún er góð!

En já annars er bara allt gott að frétta af okkur! Krakkinn farinn að hreyfa sig á fullu.. haha það er svo skrítin tilfinning! Mér krossbrá fyrsta kvöldið en svo er ég svo spennt fyrir þessu! Er alltaf að reyna að láta aðra finna en enginn virðist finna neitt nema ég! Jói búin að finna smá en ekki mikið! Djöö bíðið bara.. þetta er sko hörku kikker!!

Svo er ég bara mikið í dagdraumum þessa dagana..
Farin að plana vinkonu-ferðina til köben í haust, sólarlandarferð með þessum elskum líka!!
Farin að hlakka til giftingarinnar hennar Erlu næsta haus (2009)
Ástralíu ævintýri, Ecuador ævintýri  og svo bara hvað það verður ggeeeðveikt veður í sumar miðað við þennan vetur!! Wow  það verður svakalegt! 

En já svo ein hérna fyrir Valgerði...
 

haha maður er allur að koma til!!
Eftir 2 vikur er svo 20 vikna sónar!! úúúú

Get ekki beeeðið!

Skrifað 14.2.2008 kl. 22:48 af

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.2.2008

Hellú

First things first...

Elsku litla beautyboman hún Elva Rut er orðin eins árs!!
Heilt ár síðan Dúna kom henni í heiminn... algjör hetja.. ja frekar auðvelt en samt hetja!
Til hamingju elsku Elva með daginn!!
Hlakka til að knúsa þig litla yndi


Þarna eru þær mæðgur að dást að flugeldasýningunni á þrettándanum! Sætastar!

Núna er ég bara ein í kotinu, æfing hjá strákunum! Og ég er bara hálf lónlý! Litla krílið mætti nú alveg fara að láta finna fyrir sér og sparka og svona! Þá væri kannski aðeins meira fjör hér! En ji ég er sko að fíla það að vera ólétt! Mér finnst þetta alltaf skrítnara og skrítnara með hverjum deginum! Samt svona skemmtilega skrítið!
Yndislega óútskýranleg tilfinning eiginlega! Ég er farin að hallast á hvað þetta er.. er alltaf að dreyma það!
Jói líka... uuuu
Þetta er svo geðveikt spennó!

Ég les alltaf svona af og til hverju má búast í hverri viku fyrir sig..
og miðað við það er ég ekkert mikið spennt fyrir sumu..

í þessari viku ætti mittið t.d að hverfa..
í næstu rassinn að stækka..
og svo vikuna eftir það fylgja lærin með!!!! mmmmmm
WHUPPTY FREAKEDY DO 

hahaha ég er HÆTT að lesa þetta!!

Umm já svo skruppum við Jói í hádeginu og tékkuðum á rúmum!
Konan sagði svo þegar við vorum að spá í stærðum .. " ég held að krílið verið frekar nett hjá ykkur og þetta ætti að duga"!!!
WHAAAT!!
Er bara farið að sjást hevý á mér eða?? Mér brá geðveikt haha Mjög fyndið!!

En við gerðum okkur lítið fyrir og fjárfestum í einu stykki!!
Rúmið á að koma á föstudaginn, kannski jafnvel á morgun!! Shitt hvað ég er spennt!  Get ekki beðið eftir að fá svona djænormas rúm!!
Happy days framundan!!!

En hef þetta ekki lengra í bili...
**Magga out**


(ÓÓÓ já stelpur... Dúna týndi ekki myndavélinni sinni þarna 26.jan Jói fann hana í vasanum á sparifötunum sínum í dag! vuuhúúúúú  
Dúna EÐA Ingibjörg voru svona séðar að láta hann fá hana áður en við fórum heim! Enginn af þeim man neitt.. og enginn kannaðist við þessa myndavél um morguninn!
Vel gert sauðir !!!
En ég skoðaði myndirnar og 'OMÆÆ hvað þetta eru fyndar myndir!!
Möst að henda þessu inn A.S.A.P Guðrún Sædís!!!!!!

Hinar myndirnar eru allar inna 5some freakin awesome síðunni.. þessar fara beinustu leið þangað inn líka takk fyrir pent!! Lövlöv)

Skrifað 6.2.2008 kl. 20:50 af

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 39
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 114330
Samtals gestir: 49796
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 05:06:30
pregnancy calendar